Hryssur


IS 2002284158 Yrpa frá Skálakoti

F: Glampi frá Vatnsleysu
M: Syrpa frá Skálakoti

Yrpa er 1.verðlauna meri og er fyrsta hrossið sem fæðist í okkar eigu.
Hún varð þannig til að Mummi í Skálakoti.
Lánaði okkur Syrpu sína og við fórum með hana norður í

Skagafjörðinn undir Glampa frá Vatnsleysu.
Glampi og hans afkvæmi hafa alltaf heillað og er hann einn af okkar
uppáhalds stóðhestum. Mikill fótaburður og fótahæð einkenna hans
afkvæmi og er Yrpa  þeim kostum ríkulega búin.

Aðaleinkunn: 8,01  

Sköpulag: 8,02

Kostir: 8,00


Höfuð: 8,0
   Skarpt/þurrt  

Háls/herðar/bógar: 8,0
   Grannur   Klipin kverk   Beinir bógar  

Bak og lend: 8,0
   Vöðvafyllt bak  

Samræmi: 8,0
   Fótahátt   Afturrýrt  

Fótagerð: 8,0
   Mikil sinaskil   Þurrir fætur  

Réttleiki: 8,0
   Afturfætur: Réttir  
   Framfætur: Útskeifir  

Hófar: 8,0
   Efnisþykkir  

Prúðleiki: 8,5


Tölt: 8,5
   Taktgott   Há fótlyfta  

Brokk: 8,0
   Há fótlyfta  

Skeið: 6,5

Stökk: 8,5
   Svifmikið   Hátt  

Vilji og geðslag: 8,0

Fegurð í reið: 8,5
   Mikill fótaburður  

Fet: 7,0
   Skrefstutt  

Hægt tölt: 8,0

Hægt stökk: 8,0




IS1996258311  Frægð frá Hólum

Faðir:  Jór frá Kjartanstöðum a.e 8.35
Ff:      Trostan frá Kjartanstöðum a.e 8.36
Mf:      Vaka frá Ytra-skörðugili  a.e 7.86
Móðir:  Þilja frá Hólum  a.e 8.43
Fm:      Kolfinnur frá Kjarnholtum a.e 8.45
Mm:     Þrenna frá Hólum  a.e 8.46
Mmm:   Þrá frá Hólum   a.e  8.48
Mmmm: Þerna frá Hólum a.e 8.02

 Frægð er 1. verðlauna meri með mikla ræktun á bak við sig.

Við  kaupum  hana  2002 af Hólaskóla.

Hún er jafnvíg bæði fyrir byggingu og sköpulag.

Aðaleinkunn: 8,29

Sköpulag: 8,29

Kostir: 8,29


Höfuð: 7,5
   Vel borin eyru   Krummanef  

Háls/herðar/bógar: 9,0
   Reistur   Grannur   Hátt settur  

Bak og lend: 8,5
   Löng lend  

Samræmi: 8,0

Fótagerð: 7,5

Réttleiki: 8,0

Hófar: 9,0
   Sléttir   Efnisþykkir  

Prúðleiki: 7,0


Tölt: 8,0

Brokk: 8,0

Skeið: 8,5
   Ferðmikið  

Stökk: 8,0

Vilji og geðslag: 8,5
   Ásækni  

Fegurð í reið: 8,5
   Góður höfuðb.  

Fet: 9,0
   Rösklegt   Skrefmikið  

Hægt tölt: 7,5

Hægt stökk: 8,0

 
IS1996255319 Brá frá Hörgshóli

F:  Jesper frá Hörgshóli
M: Baldursbrá frá Hörgshóli

Brá er sammæðra Kappa frá Hörgshóli sem var 1v. klárhestur með 8.35 a.e.

Hún er ósynd en við keyptum hana af Sigga Sig.
Hún er rýmis brokkari með mikinn fótaburð og fjörvilja.
Það eitt er nóg til að skapa afreks hross á gangi.

Hörgshóls hrossin eru þekkt fyrir að vera með mikið skap og þar af
leiðandi er þau eru mjög ósérhlífin í reið.  Kröftug lend og mikið brokk
með mikilli kreppu aftufótarins er áberandi í þessum húnversku hrossum.
Frá hækli og niður á jörð myndast ekki vinkill eins á mörgum hrossum
heldur vísa afturfætisleggirnir oft inn á Hörgshólshrossunum og við það
kemur mikill spyrna  enda voru þessi hross sigursæl á stökkkappreiðum
í gamladaga.

 


IS 1992276161  Kría frá Eyjólfstöðum

F:  Stjörnugnýr frá Kjarri
M: Sera frá Eyjólfstöðum

Kría er sammæðra Toppi frá Eyjólfsstöðum sem er með 8.43 a.e.
Hana keyptum við að Guðmari Þór Peturssyni.
Kría er rúm og viljug alhliða hryssa með góðan fótaburð.


IS1995258991 Dimma frá Egilsá

F: Miðill frá Hólum
M: Þóra frá Vík

Dimma er klárhryssa og er ósýnd.
Hana fengum við frá vina fólki okkar 2007.
Hún er stór með mikinn prúðleika og ágætis fótaburð.