måndag, januari 30, 2012

Veðrið

 
Skjótt skipast veður í lofti.  Fyrir stuttu var snjór en núna er allt að verða  bla, bla, bla.......  nenni ekki...ég er farinn að sofa...

Posted by Jakob Lárusson at 23:39 | | Comments (4) | Link


måndag, januari 23, 2012

Halló!!!

Loksins, loksins!!!!Jæja er að prufa nýju tölvuna, fdhgs æsjhg ælkjdf ædfsj já virðist virka.Reyndar er hún gömul en ný fyrir mig.Takk fyrir Pétur.

Posted by Jakob Lárusson at 00:01 | | Comments (4) | Link


söndag, oktober 17, 2010

Tölvu viðgerð

Jæja langt síðan síðast. Latur hef ég verið að setja inn fréttir en það er tölvunni að kenna. Hún er svo heimsk. Tölvan getur ekki sett myndir inn á fréttirnar og segir bara error eða vírus allert þannig að ég öskraði bara á hana og kallaði hana heimska belju og henti henni í gólfið, "Ég vil mynd, MYND.... skiluru ekkert heimska víra drusla" öskraði ég hana aftur þar sem hún lá í gólfinu. Gott er að stíga á skjáinn með hælinn en tölvum finnst það vont. Núna er ég að nota tölvuna hennar Brynhildar. Hún er ekki eins heimsk og mín var.

Posted by Jakob Lárusson at 12:23 | | Comments (40) | Link


torsdag, juni 17, 2010

Smá fréttir.

  Ævar og Yrpa veturinn 2009, en hann eignaðist stelpu nú um daginn og óskum við þeim Ævari og Tótu til hamingju með það.
 
   Hvað er að frétta. Yrpa er köstuð en hún fékk hest folald undan honum Klæng frá Skálakoti. Folaldið fékk nafnið Ylur og verður það eina folaldið í sumar sem kannski er ágæt miðað við aðstæður.
Yrpa er annars farin undir hann Álf frá Selfossi. Frægð er hjá honum Kvist frá Skagaströnd. Brá er hjá honum Hróð frá Refsstöðum og Kría fer undir hann Þorsta frá Garði.

Posted by Jakob Lárusson at 20:48 | | Comments (40) | Link


onsdag, april 21, 2010

Eldgos í Eyjafjallajökli

Moldnúpur.Kvöldið fyrir öskufallið. Mynd Jakob
 
   Mikið hefur gengið á og þá sérstaklega síðasta laugardag. Aldrey hef ég upplifað annað eins þann dag. Samt sem áður eyddi ég honum með góðu fólki en ég, Mummi, Orri og Einar Viðar fórum víða í öskufallinu að aðstoða kunningja og vini í sveitinni. Meir um það síðar.

Posted by Jakob Lárusson at 11:24 | | Comments (29) | Link


››

Home
Log in


‹‹ maj 2012 ››
W Mo Tu We Th Fr Sa Su
18 1 2 3 4 5 6
19 7 8 9 10 11 12 13
20 14 15 16 17 18 19 20
21 21 22 23 24 25 26 27
22 28 29 30 31      

Recent posts
Veðrið
Halló!!!
Tölvu viðgerð
Smá fréttir.
Eldgos í Eyjafjallajökli
Eldgos og Steingrímur.
Rós frá Efri-Rotum
Horse
Snjórinn minnir á sig.
LM og væntingar


Categories
News